Athuga laust

Herbergi:    

Koma:

Nætur:

Image gallery

Thrifty

Viðburðir

-

Smelltu hér til að skoða helgarpakkana fyrir 2012!

Í verði allra pakkanna er innifalið gisting, fullt fæði og aðgangur að Jarðböðunum við Mývatn og Sundlauginni í Reykjahlíð auk þess gönguskíði og skór, vallargjöld á golfvöllinn í Reykjahlíð eftir því sem við á.

Sveitaþorrablót

Gildir 17-19. febrúar. 29.900 á dag fyrir 2, aukanótt 13.000 kr fyrir 2 með fæði.

Langar þig ekki á alvöru sveitaþorrablót þar sem borðin svigna undan heimagerðum kræsingum og hægt er að njóta útiveru milli þess sem bragðað er á hinum ýmsu kræsingum af gómsætum þorramat? Við búum þetta til og gerum úr því heila helgi af upplifun í mat og útiveru. Veislan byrjar á föstudagskvöldi með súpu og lambasteik að hætti sveitamannsins með ís á eftir. Í hádeginu á laugardag snæðum við svo hina ýmsu grauta og borðum súrmat með. Leikum okkur svo úti í vetrinum allann daginn og um kvöldið er aðalmáltíðin með sviðum, hangikjöti, harðfisk og hákarli, úldnum eggjum að mývetnskum sið að ótöldu öllu hinu góðgætinu. Þetta er veisla sem engin mataráhugamaður lætur framhjá sér fara.

Letidagar

Gildir fimmtudag til sunnudags frá 2. febrúar til 1. APRÍl, 29.900kr á dag fyrir 2, aukanótt 13.000 kr fyrir 2, með fæði

Hefur þig aldrei dreymt um að snjóa inni eða verða veðurteppt á hálendinu? Í góðum félagsskap, á góðu hóteli með fyrsta flokks þjónustu getur slíkur draumur orðið að lífsnautn sem þú aldrei gleymir. Takið með ykkur sleðann eða leigið hjá okkur, nóg af gönguleiðum, troðnar skíðagöngubrautir og ómótsæðileg náttúrufegurð innrömmuð í norðurljósum á fallegu vetrarkvöldi.

Gleðilega páska

Gildir frá 5. – 9. apríl, 33.600kr á dag fyrir 2, aukanótt 13.000 kr fyrir 2, þriðja nótt 9.000 kr fyrir 2 og fjórða nóttin frítt.

Það er gaman að vera í Mývatnssveit um páskana, sleðafæri um öll fjöll, troðnar göngubrautir fyrir gönguskíði, píslargangan á Föstudaginn langa, tónleikar með Músík í Mývatnssveit og svo auðvitað Jarðböðin á hverjum degi sem líkur með sælkeramálíð í okkar vinsæla veitingahúsi Myllunni.

Vor í Mývatnssveit

Gildir fimmtudaga til sunnudaga frá 12. apríl til 10. júní, 29.900 kr á dag fyrir 2, aukanótt 13.000 kr fyrir 2.

Vorin á hálendinu eru töfrum líkust, rómantíkin svífur í loftinu sem ómar af fuglasöng í bjartri nóttinni. Land og lögur iðar af lífi og fjöri og náttúran öll lifnar við. Gönguferðir í þessu umhverfi er nokkuð sem lætur engan ósnortinn á sál og líkama.

Golfpokinn

Gildir alla daga frá 24. maí til 17. júní og svo frá 23. ágúst til 23. september 29.900 kr á dag fyrir 2, aukanótt á 13.000 kr fyrir 2.

Skammt frá hótelinu er Golfvöllur Golfklúbbs Mývatnssveitar sem er einn mest krefjandi golfvöllur landsins. Hann er 9 holur og par 66, langar og stuttar brautir um hóla og hæðir. Þetta er völlur er jafnvel bestu spilarar þurfa að taka á stóra sínum. Við bjóðum einstakt tækifæri til að leika þennan völl í bjartri sumarnóttinni eða í fallegum haustlitum.

Haust í Mývatnssveit

Gildir fimmtudaga til sunnudaga, 27. SEPTEMBER til 28. OKTÓBER, kr 33.600 á dag fyrir 2, aukanóttin á 13.000 kr fyrir 2.

Mývatnssveit er fræg fyrir margt, eitt af því er mikil haustlitadýrð þegar heiðarlöndin skarta gulum og rauðum móum og hlíðum. Kindajarm í haga og gæsagarg í loftinu ramma svo inn myndina. Tilvalið tækifæri til að endurnýja kynnin við náttúrurómantíkina í sveitinni.

Villibráðarveisla

Laugardaginn 13. október höldum við haustveisluna okkar þar sem kokkurinn og þjónninn fara á kostum í mat og drykkjum, þetta er einstök veilsa sem engin áhugamaður um mat og vín skyldi láta fram hjá sér fara.

Á matseðlinum á föstudögum og laugardögum í október verður að sjálfsögðu villibráð, villtur lax og Mývatnsbleikja í forrétti, gæsir og hreindýr í aðalrétti og eftirréttir úr bláberjum og eplum, matreitt af alkunnri snilld matreiðslumeistara okkar og sérvalin vín með villibráð boðin með. Tilvalið að taka helgina í sveitinni, stunda gönguferðir og böð og njóta villibráðar bæði kvöldin.

Til baka