Athuga laust

Herbergi:    

Koma:

Nætur:

Image gallery

Náttúruvernd við Mývatn

Mývatn

Mývatn er á norðaustur Íslandi á vestur brún eldfjallahryggsins sem liggur skáhalt í gegnum Ísland frá suðvestri til norðausturs. Mývatn er 37 ferkílómetrar að stærð og á því eru um 50 litlar eyjar. Gróðurinn í vatninu gerir Mývatn að einu besta fiskivatni landsins og fuglalífið hér er heimsfrægt.
 

Náttúruvernd

Mývatn og Laxá eru vernduð svæði. Öllum er frjálst að njóta þessa ógirta og upprunalega landsvæðis, nema að annað sé kynnt, en ekki má hrófla við eða skemma náttúrulegt umhverfið, gróðurinn eða lífríkið.

Aðeins er heimilt að tjalda á merktum tjaldstæðum.